Aðalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

Innskráningar kubbur

Bara svona til að rifja upp gamla takta;)

12. maí 2009 klukkan 22:40
Stoltur Íslendingur og vinna... Nánar
Þórdís Ágústsdóttir

Köbenferðin

18. mars 2008 klukkan 11:24
Já núna ég er komin heim úr köben og það var alveg æðislegt að vera þar. Þó maður hefi nú orðið pínku hræddur um að það yrði stolið einhverju af þér. Plús það að það var nú bara myrtur 29 ára gamall dani á sunnudeginum þarna úti um miðjan dag. En svona er þessi borgar að breytast í. Alveg hræðileg öll þessi gengi sem eru þarna í borginn eða koma bara til köben til að eyðileggja, drepa og stela. En nóg um það.
Við mættum mæðgurnar hressar og kátar út á flugvöll Leifs Eiríkssonar um kl. 05:00 að morgni föstudags. Innrituðum okkur og spáseruðum smá þarna um og fórum svo bara í flugið 07:15. Lentum svo hressar á flugvellinum í Köben og tókum þá metro og strætó heim til Jóhönnu vinkonu mömmu sem við gistum heima hjá. Þegar við vorum svo búnar að þramma upp 86 tröppur með töskurnar í hendi þá komum við okkur út á strikið og fórum einhvað að spásera þar og kíkja í búðir. Náðum reyndar ekki að labba allt strikið því við vorum svo þreyttar eftir flugið og svo lengi í sumum búðunum að það var farið að loka sumum búðunum og svona. En allaveg þá komum við okkur bara heim til Jóhönnu og pöntuðum okkur Pizzu á pizzastað bara þarna fyrir neðan Jóhönnu. Svo horfðum við bara á Xfaktorið danska sko með Jóhönnu og vinkonu hennar og svo fórum við bara að sofa.
Á Laugardeginum þá vöknuðum við hressar um 9 leitið og fórum að undirbúa okkur fyrir mikla verslunarferð í Fields mollinu mikla. Þegar allt var til reiðu þá strunsuðum við niður á kongsins Nytorv og tókum metroinn að Fields. Svo dvöldum við lengi og vel í H&M búðinni þar og versluðum öll okkar innkaup þar. Sem var mjög gott og svo líka er þetta svo ódýrt. En við löbbuðum nú líka í aðrar búðir þarna og svo fengum við okkur smooth að drekkka og líka smá kaffi og sætingi í Kökuhúsinu þarna. En svo þegar dagurinn var bara allt í einu búinn þá fórum við bara heim til Jóhönnu og gerðum okkur klárar fyrir það að fara út að borða með henni á Indverskum veitingastað. Þetta var mjög fínn, heimilislegur og lítill staður í gömlu húsi þarna einhverstaðr í Köben og það var mjög fínn matur þarna. Pöntuðum 4 rétti sem við svo borðuðum allar af bara svona smakk og svo fengum við að smakka skrítna ísinn þeirra. Svo fórum við bara södd og glöð heim að sofa.
Svo á Sunnudaginn þá eru náttúrlega flestar búðir lokaðar svo að Jóhanna tók okkur í smá gönguferð um Köben og við löbbuðum í hina ýmsu konungsgarða og sáum var dottningin á heima og hallirnar hennar og svona skrítna kalla með stórar loðhúfur á hausnum. Svo sáum við líka þessa "risa stóru" hafmeyju sem Danir eru svo stoltir af. Svo fórum við að borða á Riz Raz eftir 2 klst göngu. Það var bara mjög fínn veitingastaður með svona hlaðborði sem var með svona pasta og allskonar grænmeti. Þegar við höfðum svo klárað að eta þá ákvað Jóhanna að fara heim til sín og við Alma drógum mömmu með á Erotíska safnið. Sem var nú bara meiri snilldin sko. En þegar við vorum búinar að skoða þetta furðusafn þá ákváðum við mamma að sýna mér og Ölmu hvar Jónsa Hallgrímsson sat og drakk í denn. Síðan löbbuðum við allt Ströget til að sýna Ölmu það allt og svo sýndum við henni líka Járnbrautastöðina og svoleiðis. Eftir þetta þá tókum við bara strætó 26 heim til Jóhönnu frá Radhuspladsen. Um kvöldið fórum við svo út að borða með Jóhönnu á Asískum veitingastað sem var mjög fínn og góð þjónusta. Það var sama sistem á honum og Indverska með það að panta fullt af réttum og svo borða allir af þeim. Við pöntuðum einhverja 3 forrétti, 2 aðalrétti og svo fengum við Alma okkur desert sem var djúpsteiktur banani með vanilluís, ógeð góður. En allaveg þá borðuðum við svo mikið að ég hélt að ég mynd bara springa án gríns. Ég held ég hafi aldrei verið jafn glöð með það að þurfa að labba upp 86 tröppur og þarna. En við Alma ákváðum sko ekki að labba upp tröppurnar þegar við komum að þeim heldur skokkuðum við þetta ágætlega hratt á meðan Jóhann og mamma siluðust þarna upp eins og skjalbökur á þurrulandi. Svo þurftu þær alltaf að taka sér stopp reglulega eftir liggur við hver 8-10 tröppu eða þegar það kom stigapallur því þær voru svo saddar. En þetta tókst nú allt á endanum. Þegar við komum svo inn í íbúðin þá fórum við mæðgurnar bara að pakka niður og fara að sofa.
Vöknuðum svo hressar á mánudagsmorgunn og þrömmuðum niður í supermarkaðinn (opnar kl.09:00) þarna rétt hjá sem var að opna og fóru mamma og Alma að kaupa sér létt vín vegna þess að það er miklu ódýrara að kaupa léttvín í supermarkaðnum heldur en í fríhöfninni. Svo þrömmuðum við út úr Fakta búðinni kl.09:10 hver með sína flöskuna undir hendi. Þetta var svo soldið spes, allaveg að sjá okkur að ég held.
En síðan lá leið okkar bara út á flugvöllin í Köben og svo bara heim til Íslands.
Kveð núna og vona að einhver nenni að lesa svona mikið..
Þórdís Ágústsdóttir

Dk á föstudag

08. mars 2008 klukkan 20:33
Jájá...Vitið menn.. Páskarnir alveg að koma og fríið líka. Þetta verður mjög stutt blogg bara svona fyrir Heiðu.. En já líka vegna þess að ég er að fara að borða fisk..sem ég bæ þe vey gleymdi að setja upp kartöflur fyrir svo sissa þurfti að gera það.. Skammast mín soldið.. Fer til Dk með mömmu og Ölmun á föstudaginn og svo bara páska frí...bless í bili...lengra blogg seinna..namm namm
Þórdís Ágústsdóttir

Árshátíðarstuð

02. mars 2008 klukkan 13:05
Sæl verið þið
Ég ættla bara að blogga stutt bloggi i dag þar sem ég veit ekki alveg hvað ég á að segja hér.
En allavega þá var árshátíð skólans á föstudagskvöldið og það var gg stuð þar. Byrjuðum á að fara til Heiðu að taka okkur til og djamma og svo brunuðum við í svaka fínum síðkjólum upp í skóla og tilltum okkur við borðið okkar. En það var mjög gaman á árshátíðinni og gg góður matur. Matti í pöpunum var kynnir og hann fór bara af kostum við það hlutverk. SVo var líka ljósmyndari eins og alltaf og auðvitað fórum við stelpurnar þangað og svo dróg ég Óskar minn til ljósmyndarans og við létum taka svona fína mynd af okkur. Svo eftir mikið át og hlátur þá fórum við aðeins heim til Sóleyar að skipta um föt og spjalla og bulla og svo fórum við bara aðeins heim til Stefán til að draga hann með á ballið með Páli Óskari. En allavega þá verð ég að koma því að hérna að hundurinn hans Stefáns er mjög stór tík og algert krútt. En svo skelltum við okkur bara á Mælifell á Pál Óskar og skemmtum okkur bara konunglega.
Svo núna í gærkveldi þá var tvítugsafmælið hennar Ömmu (80 ára og á afmæli 29.feb) svo núna loksins má sú gamla fara í ríkið og á bari til að kaupa áfengi. Pælið í því bara búin að bíða í 80 ár og loksin má hún kaupa þetta. En það var svaka stuð. Fjölskyldan kom hérna og fagnaði og borðað með henni hérna heima og svona svo var reynt að syngja og myndir sýndar og svo náttúrlega spjallað líka. En núna sit ég bara hérna að gera ekkert og systir mín og börn eru farin upp í fjall á skíði og ég veit enn ekki hvort ég ætti að fara að bara að liggja í leti hérna heima og reyna að jafna mig eftir alla familyuna.
Bless bless
Þórdís Ágústsdóttir

Árshátíð í nánd

26. febrúar 2008 klukkan 22:42

Sæl verið þið öll sem nennið að lesa þetta bull í mér. Ég hef nú bara verið á fullu í prófum frá því á fimmtudaginn í síðustu viku og svo eru síðustu 2 prófin á morgunn og vona bara að mér gangi vel í þeim prófum. Hefur gengi vel, allavega eins og mér finnst, hingað til en svo er bara spurningin hvað maður fær í einkun. En ég bíð allaveg spennt eftir þvi hvað ég fæ í stærfræðinni því mér fannst mér ganga svo vel í því prófi miðavið hverning mér hefur gengið í síðustu tveim áföngum á undan. En svo eru það bara opnudagarnir og ég vona bara að þeir verði skemmtilegir. Það er líka svo gott að fá svona smá pásu frá skólanum og gera eitthvað annað eftir að maður hefur ekkert annað gert en að hanga yfir lærdómsbókunum. Svo er árshátíð á föstudaginn hjá skólanum og það verður geggjað gaman held ég. Ég, Heiða og Sigrún fórum í smá svona stelpurferð til Akureyrar að kaupa á mig og Sigrúnu fínan kjól til að vera í á árshátíðinni og svona flott heit. Svo fórum við Sigrún í plokkun og litun í dag og það var í fyrsta skipti hjá Sigrúnu. Svo fynndið að sjá þegar það var verið að vaxa hana hún vissi ekkert hvað ég og Heiða vorum búinar að plata hana í en hún lifði þetta af og öskarði ekkert svo að þetta er allt í góðu. Svo erum við Sigrún að fara í naglaásetningu á morgunn reyndar ekki saman og hjá sitthvorri konunni og svo erum við Óskar að fara í klippingu og ég í litun á fimmtudaginn. Það er sko full dagskrá hjá mér það sem eftir er af vikunni. Plús það að ég á víst að vera að æfa mig eitthvað að spila eitthvað lag á píanó til að spila í afmælinu hennar Ömmu gömlu á laugardagskvöldið. Sú gamla er sko að verða 80 ára á föstudaginn. Svo að það verður risa afmælisveisla hérna heima á laugardaginn þar sem öll familyan ættlar að sameinast og halda upp á afmælið og gera eitthvað skemmtilegt saman. Rifja upp gamlar minningar og þeir sem geta sungið af þessari ætt ættla kanski að láta í sér heyra. En ef mér skilst það rétt þá held ég það það sér um helmingurinn eða meira laglaus svo að það verða bara tengdasynir og tengdabarnabörn sem syngja og svo kanski nokkur barnabörn sem hafa hlotið þá snilldar náðargáfu að fá að erfra frá föður sínum eða móður(tengdabörnin hennar Ömmu)  þá sönghæfileika sem þau hafa upp á að bjóða. En svona er þetta bara. Það geta bara því miður ekki allir sungið. En ég þarf semsagt að fara að æfa mig þar sem ég hef eiginlega bara ekki litið upp úr lærdómnum í svona 2 vikur og þess vegna ekki haft neinn tíma til að spá í þessum píanónótum sem mamma er að heimta að ég spili. Alger frekja..Nei djókur..
Ættla núna að fara að leggjast til rekkju og læra smá fyrir sjúkdómafræðipróf og vakna svo hress á morgunn til í síðustu prófin;)
Kveðja frá mér og mínum
P.S. Ég ætla að tilkynna það að það er kominn miðstöð í verðandi kjallaraíbúiðina okkar Óskar míns svo að núna verður bara heitt þarna niðri og kósí.

Þórdís Ágústsdóttir

Aðal Barnapían

22. febrúar 2008 klukkan 16:54
Já sæl og bless. Hér kemur eitt svaka blogg bara svona fyrir Heiðu því hún þarf að vita allt sem er í gangi svo að hún detti nú bara ekki úr umheiminum. Ég eins og er þá erum við Sigrún litla staddar heima hjá henni heiður en hún er samt ekki við vegna þess að við erum að gæta barnsins hennar þar sem hún er á svaka sundæfingu að pína sundbörnin sín.. En ég er greinilega orðin aðalbarnapían þar sem ég er alltaf að passa Lúsí og svo er ég komin með nýtt aukastaf sem er að gæta litla frænda mín á kvöld svona þegar móðir hans og faðir þurfa að skjótast á fundi og eitthvað hestastúss. En ég var semsagt að passa hann Jónas Atla á miðvikudagskvöldið og það gekk bara mjög vel. Hann hafði aldrei verið í pössun hjá mér og var bara pínu feimin en fór svo bara eitthvað að hlæja og leika sér þegar móðir hans var farin frá oss í smá tíma. En hann var bara rosalega góður strákur og grét bara smá þegar hann var orðin þreyttur en það bjargaðist því að þá kom akkurat Íris móðir hans heim til að gefa honum að súpa og svæfa hann. En ég er að hugsa um að fara eitthvað að fíbblast með sigrúni í barninu hennar Heiðu semsagt henni Louisu litla krútti. Hún er einmitt í þessu að dansa við gulan bangsa við stundin okkar lögin.
Í rass og bala
Þórdís
Þórdís Ágústsdóttir

Febbablogg

16. febrúar 2008 klukkan 00:42
Jæja börnin góð í dag þá ættlum við að læra um ekkert. En eins og þið sjáið þá er ég mjög aktívur bloggari eða þanning þar sem ég bloggar bara á 2 mán-1 árs fresti en það er þó betra en ekkert. Ég hef líka aldrei neitt að segja svo þetta verða alltaf bara leiðindarblogg. Ég meina það gerist aldrei neitt hjá mér sem er eitthvað merkilegara en annað. Vakna kl. 7:20 virka daga og fer í skólan kem heim um sex leitið og fer þá að læra eða er svo uppgefin eftir skólan að ég bara fer og slaka á og svo fer ég bara að snemma að sofa vegna þess að ég er alltaf svo þreytt að ég höndla ekki að fara vaka lengur en til 11. Svona er þetta að vera duglegur námsmaður í 26 einingum;) En svo auðvitað kemur fyrir að ég fari nú líka að passa litla krúttið hennar Heiðu minnar, hana Lúsí (Louisu Lind). Elska þetta krútt, hún er svo mikið æði;) Ég er bara abbó út í Heiðu að eiga hana;) thíhíh.
Ég afrekaði nú mikið í gær. Ég er tók þá ákvörðun á miðvikudagskvöldið að fara að vegna mig á gamlan góðan vana með það að fara að nota linsur aftur. Ég hef bara notað þær svona við einstök tilfelli sem er ekki gott að hafa gleraugu á nefbroddinum því að þau gætu skemmst eins og til að mynda þegar maður er staddur í stríði við kálfa og kýr í fjósi eða er að vesenast í kjallaranum við verðandi íbúðina sína. En allaveg þá var ég bæði dugleg í gærmorgunn og einning í morgunn við það vakna og nenna að setja linsuflipana mína í augun mín. En það komst samt eitt vandamál uppá hjá mér á fimmtudeginum. Það var þanning mál með vexi að ég var búin svona 40 mín fyrr í tíma en vanaleg og átti svon að fara í tíma efti 40-50 mín og var ekki á bíl né með pening á mér þar sem það var í bílnum sem var einmitt heima hjá honum Óskari mínum og svo var Heiða auðvitað farin til RVK svo að ég hafði engan samastað þar sem Sóley hafði verið búinn ennþá fyrr í tímanum og var því farin. En ég ákvað þá bara að hringja í hann Óskar minn og spyrja hann nú að því hvort hann væri ekki GAME í það að koma út á Krók aðeins fyrr og taka nokkra rúnta með mér og leyfa mér að hlaupa inn á N1 og versla mér smá drykk og gotterí fyrir sjúkdómafræði tíma sem var síðansti tíminn minn og byrjaði kl. 16:20 og er til 17:30. En allavega þá þótti honum þetta mjög erfitt fyrst svo ég nennti nú bara ekkert að ræða meira við hann og sagði bara bless við hann. Ég ákvað því bara að rölta niður í verknám þar sem þessi ástkæru sjú tímar eru þar og ættlaði nú aldeilis að sitja þarna ein niðurfrá í
40 mín og bíða eftir tímanum. En hvað haldiði að hafi þá gerst???
Jú!!! Hann Óskar minn hringjir bara og segjist vera að fara að leggja af stað út á krók og spyrt hvort ég vilji ekki fá að hoppa í bílinn hjá honum og Sigrúnu Systur(hans) og versla mér smá í mallan svo ég myndi nú lifa þennan ástkæra sjú tíma minn af. Og svo leið smá tími og þá hringdi hann aftur og bara hey við erum komin koddu út í bíl og ég bara Okey ekki málið;) og hljóp beyvotshlaup út í rigninguna en gat bara engan veginn skilið af hverju það settust ekki regndropar á gleraugun og var bara nokkuð hissa á þessu en líka mjög glöð því þá myndi ég ekki þurfa að pússa þau og þurka þegar ég kæmi inn í bíl. En vitið menn á miðri leið út í bíl þá fattaði ég þann hræðilega atburð að ég væri ekki með gleraugu heldur..........LINSUR!!!!!! Sem var nú reyndar ennþá betra;).
En ég dag þá gerði ég nú líka mjög merkilegan hlut. Ég og Sissa tengdó ákváðum að fara út á Eyri og kaupa okkur málingu á nýju íbó í kjalló, bara svona vegna þess að við höfðum séð auglýst í sjónhorninu að það væri 25% afsl af eitthverri Flugger málingu og kópal. En svo mætum við þarna á svæðið og spryjum hvað 10 lítra af eitthverjum morgunngulum lit kosti í þessari málingu sem var á afslætti og maðurinn í málingadeildinni bara: já þetta kostar svona 9000 kjéll og við bara sögðum jámm með(svona of dýrt svip). Og svo tilkynnti maðurin okkur það að það væri nú til ódýrari máling sem væri fín á aðeins 4900 kjéll og við bara jább fáum eina svona og svo aðra með rjúpuhvítum og hann bara okí og blandaði þetta fyrir okkur og svona. Og allan tíman hélt hún Sissa mín að hún væri að kaupa málingu á tilboði. En allavega. Svo komum við að kassanum og þá spyr afgreiðslustúlkan hvort að eitthver önnur máling sem við vorum með væri á afls og við héldum ekki en svo komst Sissa að því að þessar tvær 10 lítra fötur voru ekkert á afls og hló mikið vegna þess að það var var næstum jafn dýrt að kaupa málingu á aflst 10 lítra og að kaupa 20 lítra ekki á aflslætti. En svona er lífið. Við erum þá allavega komnar með 20 lítra af málingu í þessar verðandi kjallaraíbúð og ég get bara ekki beðið eftir því þegar ég fer að mála. Sem verður vonandi bráðum;) thíhíh
En núna er ég oriðn sibbilúrin því ég er búin að vera svo duglega að taka fullt af eitthverju gömlu antík dóti út úr eitthverri stórri geymslu undir forstofunni og útitröppunum og bera það upp tröppur og út í kerru og svo úr kerrunni og inn í Bragga þegar það var náttúrlega búið að færa kerruna. Hvað haldið þið eiginlega að ég sé??? Eitthvað heimsk eða?? Ég veit sko alveg hvað þið voruð að hugsa!! Nei djókur.
Sorgarfrétt vikunnar: Oddný mín er farin til Paragvæ í 1 ár sem skipti nemi svo ég fæ ekkert að sjá hana fyrr en 14. feb '09.. En hún hefur nú bara gaman að þessu og svo fæ ég að heyra alveg fullt af sögum þegar hún kemur til baka og vonandi sendir hún mér póst regló til að segja mér að hún sé á lífi og allt sé í góð hjá henni;)

Lifið heil í gömlum Feil;)
Þórdís stubbateljari
Þórdís Ágústsdóttir

Jólin hér og jólin þar

17. desember 2007 klukkan 21:30
Já!!! nú styttist ófluga í jólin og ég ekkert búin að kaupa jólagjafir..þetta er alveg hræðilegtHissa En ég er að vonast til þess að ég komist suður í jólainnkaupin þar með Sigrúnu á fimmtudaginn og föstudaginn...Vona bara að veðrið ættli ekki að skemma allt fyrir mér eins og það er búið að gera..Ég má ekki fara ein suður vegna þess að mamam og pabbi eru eitthvað hrædd um mig þegar ég fer að keyra í RVK vegna veðurs og eitthvað svo að ég má ekki fara nema að mamma komin með og ég er nú ekkert mjög sátt með það en hvað getur maður gertÓákveðinn Mér finnst þetta nú samt soldið svekkjandi að vera orðin 18 ára og mega ekki fara til RVK ein. Hef reyndar bara einu sinni áður farið ein og það var í vor og en var nú nokkuð hissa á því hvað ég komst mikið með án þess að týnast. Komst á alla áfangastaðina með án þess að fara eitthverja svaka krókaleiðir og svoleiðis rugl...nokkuð stolt sko..
En ég er búin að vera svakalega obosslega svkalalega dugleg í dag. Er búin að eyða alveg 2-3 klst í það að skrúbba eitthvern helv!!! kísil úr sturtubotninum fyrir mömmu svo að sturtubotninni er eins og nýr núna og ég er nokkuð stolt og þreytt í hendinni eftir þetta.. Svo er ég lika búin að þrífa klósettin og hjálpa mömmu að undirbúa eitthvað matarboð og svoleiðis rugl.. Ég fór líka í varmó og keypti 2 seríur sem ég er búin að hengju upp með mömmu...allt svaka fínt hja okkur núna.. Núna er líka húsið fullt af leikfimikjellum sem eru með mútter í leikfimi og svona..
En jæja..ég ættla að hætta þessu núan og fara að borða þennan dýrindis kjúlla sem ég er búin að horfa á inn í ofninum í marga tíma því hann er svo stór..
kv. Þórdís
Þórdís Ágústsdóttir

Eitt svona í tilefni dagsins

07. nóvember 2007 klukkan 13:42
Já..Tók mér smá frí í þessu bloggi veit nú reyndar ekkert hvort ég sé eitthvað að nenna að blogga en við sjáum til hvort það komi svona eitt blogg á ári...Mér findist það nú fínt ef það kæmi 1 blogg á ári því þá væri ég bara dugleg að blogga miðavið mig...hehe...En allaveg þá er ég eins og skrímsli í útliti núna..Er með stokkbólgna vör út af því að ég er með svona 1000 frunsur á neðri vörinni...þetta er ógeðsleg...Var næstum farin bara á slysó í morgunn þegar ég vaknaði en ákvað a þetta gæti varla verið eitthvað lífhættulegt..en það kemur bara í ljós ef að ég hrin niður dauð eitthverstaðar og þá vitið hvað var að..en þetta er allaveg mjög óþægilegt og geðveikt pirrandi. Líður eins og dýrinu í Fríða og dýrið. Alveg svakalega óþægilegt. En sem betur fer þá á ég nú ennþá vini..ehehe.. En þetta er nú alveg ljómandi dagur í dag.. Þurfti bara að mæti í 1 tíma í staðin fyrir 3 í skólanum í dag..Mjög þægilegt..Fór í skólan 9:45 og var búin kl.11:00...mjög þægilegt..hehe..En ættli maður reyni ekki núna að einbeita sér að því að losa sig við þessar skrilljón frunsur sem að maður er með á vörinni og að minnka bólguna..er búin að bera á mig öll krem sem mér dettur í hug að gætu virkað en ekkert hefur virkað hingað til..Er t.d. að verða búin með blessaða frunsukremið mitt..alveg hræðilegtGráta En ég ættla allvega að skemmta mér við það að kenna henni Heiðu minni í vistfræði í kvöld..Það verður stuð.. Kássast smá í Louisu á meðan og svona;) hehe
Kveð nú og skrifa kanski eftir 6-12 mán.Hlæjandi
Þórdís Ágústsdóttir

Gleðilega Páska

08. apríl 2007 klukkan 16:55

Ættla bara að blogga í punktum. Gleðilega páskahátíð

  • Var að vinna í nokkra daga í byrjun frís
  • Fór með Sigrúnu upp í minkabúið hans Nonna að hitta Óskar og Max á föstudaginn
  • Lappi kom með
  • Ég og Sigrún hjálupum til við að búa til minkabúr
  • Lærði að segja minkur á þýsku
  • Lappi fann mink út í skurði
  • Max náði minknum
  • Nonni tók hann og drap hann
  • Við fórum heim
  • Var slök næsta dag
  • Horfði á Ástrík og Steinrík
  • Skrapp aðeins heim til mín með Óskari
  • Fékk mér smá ölara
  • Fórum aftur heim til hans Óskars
  • Vaknaði næsta dag og horfði á Ástrík með Sigrúnu
  • Sofnaði yfir Ástrík
  • Skutlaði Sigrúnu í Brimmnes
  • Fór Ólafshús með Óskari og Aldísi
  • Borðuðum og mikið
  • Fór á ball á blönduósi um kvöldið
  • Hitti fullt af fólki
  • Hitti Oddný bestu
  • Egill laminn
  • Þegar við komum aftur á krókinn og stoppuðum fóru Skapti og Max í snjókast
  • Kom heim á Reynistað og fór að sofa
  • Vaknaði og fór heim til mín
  • Borðaði páskaegg með Óskari
  • Fór út að týna greinar
  • Læt þetta duga í bili

Bless bless

Þórdís Ágústsdóttir